|
uppáhalds blogg tígursins
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 23 apríl
|
23.04.2007 13:28:45 / tígurinn
Loksins gerist það........
Ég held það sé kominn tími á að ég skrifi inn smá blogg. Það er svo
rosalega langt síðan ég hef skrifað eitthvað síðast.
En allavega þá vona ég að allir hafi haft það gott um páskana, og
nú er sumardagurinn fyrsti kominn, og ég óska öllum gleðilegs
sumars
Það er bara allt gott að frétta af mér, síðustu dagar hafa verið
æðislegir, enda er ég búinn að vera mikið með Sólveigu Björk
ástinni minni elska þig(L) Hún var reyndar heima hjá sér, og ég
heima hjá mér yfir páskana, en ég fór í Sandgerði í vikunni fyrir
páskana og var hjá Sólveigu í nokkra daga. Svo við lifðum nú af
hehe
Bæði fjölskyldan mín og fjölskyldan hennar Sólveigar voru með
matarboð á sjálfan páskadag, þannig það var mikið að gera.
Sólveig opnaði páskaeggið sitt á páskadag eins og flestir gera, en
það gerði ég ekki. Ég hafði bara ekki list á páskaeggi
Í staðinn fór ég útí búð fyrir mömmu til að kaupa eitthvað
sem vantaði í matarboðið um kvöldið, og svo tók ég bílinn okkar
Sólveigar og handþvoði hann allan uppúr vatni með klút Vatnið
varð mjög skítugt, ég held ég hafi farið þrisvar inn að skipta
hehehe
Sólveig kom svo til mín í Kópavoginn helgina eftir páska og
var hjá mér Við gerðum rosalega margt saman á laugardeginum,
fórum við aðeins í Smáralind, keyptum okkur fótbolta hehe Þaðan
fórum við svo á Mc Donald´s og fengum okkur að borða.
Svo keyrðum við úr Kópavoginum og niður í miðbæ afþví að
Sissi, elsti bróðir hennar Sólveigar var hjá kærustunni
sinni henni Erlu, sem á heima þar, og hann hafði aldrei hitt mig,
en langaði til þess Okkur tókst samt ekki alveg að
rata, þannig við keyrðum niður að lögreglustöðinni, og aðeins
bakvið hana, lögðum svo bílnum og Sissi kom á móti okkur. Við
röltum með honum uppí íbúðina hennar Erlu, stoppuðum þar í smástund
og spjölluðum við þau.
Mér fannst það bara mjög gaman sko, og Sissi mjög skemmtilegur og
hress Núna er ég loksins búinn að hitta alla í fjölskyldunni
hennar Sólveigar
Og Sólveig mín þú veist ég elska þig meira en mitt eigið líf,
elsku ástin mín (L)(L) Þú ert fulllkomnasta, fallegasta, sætasta
og æðislegasta stelpa sem til er
En já svo núna á miðvikudaginn kláraði Kata systir prófin, og þau
Nonni flugu til Danmerkur á fimmtudeginum, svona aðeins til að eiga
smá frí saman. En þau koma reyndar heim einhvertímann í kvöld
Svo kom Sólveig aftur til mín um þessa helgina, en mamma átti
afmæli á laugardginn, þannig við Sólveig vöknuðum
um klukkan tíu og fórum út um tólf. Keyrðum niður í
Smáralind, og keyptum blómvönd handa mömmu. Pabbi er búinn að vera
mikið niðri í bílskúr að vinna, hann er að mála skúrinn og breyta.
Ég vissi ekkert hvenær hann myndi fara út, þannig við Sólveig
skrifuðum að blómin væru frá okkur báðum, og honum líka hehe
Svo þegar við Sólveig ástin mín, komum heim þá sagði mamma okkur að
pabbi hefði farið með rusl úr bílskúrnum, og þegar við vorum búin
að gefa mömmu blómin, og mamma búin að koma þeim í vasa, þá kemur
pabbi labbandi upp stigann með annan risa blómvönd hehehe
En ég held ég sé búinn að blogga í bili, endilega skrifið komment á
það
Sólveig mín þú veist að ég elska þig að eilífu, þú ert fullkomnasta
kærasta í öllum heiminum. Lov jú(L )
Takk fyrir mig í bili, Tómas Kári
»
05.04.2007 22:35:58 / tígurinn
Það er kannski kominn tími á að skrifa smá blogg hehehe
Rosalega langt síðan ég hef skrifað eitthvað hérna síðast, en þetta
er alltaf svona, ég tala alltaf um að ég ætli að verða duglegri að
blogga, en svo gerist aldrei neitt hehehe  Það er nú ekki
alveg nógu gott
En það er annars allt gott að frétta af mér,
Ég hef aldrei verið jafn hamingjusamur og ég er í dag, það er komið
meira en hálft ár, síðan ég og Sólveig byrjuðum saman, og ég vil
bara segja að ég elska þig meira en allt ananð elsku ástin mín, og
ég er ástfanginn af þér upp fyrir haus. Þú ert fullkomnasta kærasta
í öllum heiminu, sætasta, besta, frábærasta og æðislegasta  Lov jú
að eilífu....(L)
Annars er það að frétta að pabbi fór til Brussel í vinnuferð með
Toyota, og er nýlega kominn heim, málinga og réttinga deildin hérna
í Kópavoginum fór þangað til að taka þátt í keppni með öðrum
evrópuþjóðum í að rétta og mála einhverja bílahluti.
Og það er gaman að segja frá því að pabbi sagði mér að íslenska
liðið hefði unnið þessa keppni í því að rétta hluti. Verkefnið var
víst að rétta bílhurð af Toyota Yaris og eitthvað svoleiðis.
Svo skruppum við Stefán vinur minn einmitt í smá ferðalag um
daginn, og keyrðum á bílnum hans á Þingvelli og niður að Vatnsvík.
Gerðum þetta líka fyrir um tveimur árum, rosalega gaman, og það var
einmitt þá sem ég sagði að það væri bjartara yfir hehehe  Stefán
og Sólveig fatta hvað ég á við  Allavega keyrðum við þangað með
Eurovision lagið sem Eiríkur Hauks syngur, í botni og með gos, og
nammi hjá okkur
Svo var Sólveig ástin mín með tannpínu núna í síðustu viku, og það
endaði með því að ég fór á fimmtudagskvöldið héðan úr Kópavoginum,
og fór með rútu til hennar í Sandgerði, var þar alveg fram á
sunnudaginn. Það var alveg æðislegt, við elduðum kvöldmatinn
eitthvað tvö kvöld í röð og svona saman  Elduðum rosalega góðan
hakkrétt með grýtu sem við Sólveig vorum geðveikt ánægð með.
Svo þurftum við eitthvað að fara útí búð, en það var svo vont veður
að Sólveig fékk bílinn hjá mömmu sinni, meðan bróðir hennar var
sofandi og ég keyrði á honum með okkur í búðina  Þá komst ég að
því hvað "Klaki" bílinn okkar Sólveigar er rosalega stór.
Og já Sólveig mín, Klaki er stærri en bíllinn hennar mömmu, ég
mældi áðan hehehe
En já núna eru að koma páskar, og ég vildi bara skrifa smá blogg
hingað og óska öllum vinum mínum gleðilegra páska...
Sérstakar kveðjur fá...
Sólveig Björk ástin mín, elska þig meira en allt annað og þú ert
fullkomasta kærasta í hieminum.
Tengdafjölskyldan mín í Sandgerði
Stefán Haukur
Magnús Stefánsson
Sylvía Björg og Andri Freyr
Hildur og Guðlaug
Mr and Mrs Guðfinnsson (Kata systir og Nonni)
Takk fyrir mig, og munið að ég er T-U-M-I 
Elska þig Sólveig Björk  (L) Lov jú að eilífu(L)
»
05.04.2007 20:41:19 / tígurinn
Hvað er miðnafnið mitt?
-Hversu lengi hefurðu þekkt mig?
-Hversu vel þekkiru mig?
-Aldur minn?
-Afmælisdagur?
-Háralitur?
-Augnlitur?
-Á ég systkyni?
-Hefuru nokkru sinni öfundað mig?
-Hvað finnst mér skemmtilegast að gera?
-Manstu eftir því fyrsta sem ég sagði við þig?
-Hvernig tegund af tónlist hlusta ég oftast á?
-Hver er minn besti eiginleiki?
-Hvort er ég feimin/nn eða mannblendin/nn?
-Er ég fyndin/nn?
-Er ég uppreisnarseggur eða fylgi ég öllum reglum?
-Hef ég einhverja sérstaka hæfileika?
-Er ég gift eða á ég kærasta?
-Hvað heldurðu að verði um mig framtíðinni?
-Hver er uppáhalds minning þín um eitthvað sem við höfum gert
saman?
-Heldurðu að við eigum eftir að vera vinir í framtíðinni?
-Höfum við einhverntíman rifist ef svo er afhverju?
-----------------------------------------------------------------------------
svo ætla ég líka að setja
þetta endilega að svara þessu
líka
1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifinn af mér?
5. Langar þig að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en
ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um
þig?
Takk fyrir
»
19.02.2007 16:28:34 / tígurinn
Það er sko kominn tími á nýtt blogg
held ég....eða hvað finnst ykkur ?
Ég hef nú ekki verið duglegur að blogga síðustu daga, og það hefur
bara ekkert heyrist frá mér í meira en mánuð...
En allavega þá er nú allt gott að frétta sko. Ég er alltaf að vinna
virku dagana, og Sólveig er í skólanum, en við erum mjög mikið
saman samt, og hún býr nú eiginlega hjá mér sko
Við Sólveig erum búin að gera margt saman síðasta mánuðinn, til
dæmis erum við búin að bæta svoldið í DVD safnið okkar, með nokkrum
ferðum í Smáralind, og einni ferð á útsölu hjá Bónusvideo, þar sem
við keyptum okkur samtals sjö myndir
Það er líka búið að vera mikill snjór og hálka, og þar sem bíllinn
okkar Sólveigar, hann Klaki, er bara á sumardekkjum, þá hef ég nú
labbað í vinnuna, og skilið bílinn eftir heima. ´
Ég keyrði á Klaka í vinnuna, í fyrsta skipti á föstudaginn síðasta,
í mjög langan tíma, og uppgvötaði líka að ég hef ekki tekið bensín
á bílinn í næstum heilan mánuð.
Mamma skrapp í eina vinnuferð til Finnlands núna snemma í janúar,
yfir eina helgi og þá vorum ég og pabbi bara einir heima. Það var
bara ágætt, Sólveig ástin mín kom og var hjá okkur feðgunum þá
helgi
Það má segja að við Sólveig séum farin að búa saman hehe Eða
allavega erum við saman um hverja einustu helgi næstum, annaðhvort
ég hjá henni í Sandgerði eða hún hérna í Kópavoginum hjá
mér......
Svo núna 27. janúar minnist ég þesss að 3 ár eru liðin frá því að
önnur amma mín yfirgaf heiminn og er núna að vaka yfir okkur að
ofan. Vildi bara minnast þess með því að segja að ég og Sólveig
erum á leiðinni í kirkjugarðinn fljólega og kíkjum á þig
Svo er best að skila hérna nokkrum kveðjum og óskum, við Sólveig
óskum Sylvíu Björg innilega til hamingju með 17 árra afmælið, og
bílprófið
Við óskum líka Hrannari frænda til hamingju með bílprófið ég er
stolltur af litla frænda, búinn að fara með honum út að rúnta, og
hann er bara fínn bílstjóri sko....Held hann þurfi ekkert að passa
sig á bensíngjöfinni.
Síðast en ekki sýst óskum við Sólveig elskulegri móður og
terngdamóður innilega til haimngju með afmælið í gær. Ég fór heim í
Sandgerði í fyrrdag, með Sólveigu og við vorum með mömmu hennar
alla afmælishelgina, svo ég þakka bara fyrir mig.....
Og svona alveg í lokinn á blogginu þá vil ég óska nokkrum til
hamingju með konudaginn í gær
Sólveig Björk ástin mín - elska þig meira en allan heiminn elsku
ástin mín(L)(L) Þú ert besta og fullkomnasta stelpa í öllum
heiminum (L) Lov jú að eilífu (L)
Greta Mjöll
Þóra Kata systir
Sylvía Björg
Eva Rós
Tengdamamma
og svo mamma
Tómas Kári þakkar fyrir sig...................
elska þig meira en allt annað í þessum heimi elsku Sólveig Björk
mín, og ég mun gera það að eilífu (L) Lov jú(L)
»
09.01.2007 22:43:54 / tígurinn
Þá er komið að því, fyrsta bloggið
á árinu
Þetta er fyrsta skiptið sem ég skrifa blogg síðan einhvertímann
rétt fyrir jól.
Nú er hátíðin búin, sem margir bíða spenntiir eftir og leggja
mikið í að gera fullkomna á hverju ári. Ég verð bara að segja það
að þessi jól voru þau bestu sem ég hef upplifað hingað til.
Á Þorláksmessu fór ég í Skötu og Saltfisksboð til systur hans
pabba. Og ég skil ekki ennþá í dag, fólkið sem getur borðað
Skötu.
Allavega finnst okkur Sólveigu báðum hún vera
ógeðsleg, og mér finnst lyktin nú alls ekki það góð að mig langi að
smakka þetta, enda gerði ég það ekki, og mun ekki gera
það.
Fjölskyldan mín hefur alltaf verið vön að hafa Hangikjöt í matinn á
aðfangadag. En þessi jólin höfðum við Kalkún, sem mér fannst
svoldið fyndið vegna þess að Sólveig og fjölskyldan hennar hefur
alltaf Kalkún líka.
Ég fékk marga góða pakka, en það fynda við gjafirnar er
að pabbi og mamma gáfu mér brúnan leðurjakka,
og ástin mín gaf mér alveg geðveikt flottan jakka
líka sem ég nota rosalega mikið(L) Hann er alveg frábær(L)
Takk fyrir mig ástin mín.
Svo fékk ég trefil frá tengdafjölskyldunni
Á jóladag vaknaði ég svo eftir hádegið, og sótti Sólveigu mína í
Smáralind, en hún kom í bæinn til að vera hjá mér. Við fórum saman
í jólaboð, sem fjölskyldan hans pabba heldur alltaf um jólin og
borðuðum hjá frænda mínum. Pabbi fór á udan og sótti ömmu, og
skutlaði henni, en ég, Sólveig og mamma fórum sjálf á bílnum okkar
Sólveigar.
Ég varð rosalega fengin að við vorum sjálf á bíl, því þegar við
Sólveig þurftum að hlusta á íslensk jólalög þýdd yfir á
dönsku þá leist mér ekkert á ástandið Milli jóla
og nýárs gerðist það að ég sótti um vinnu á leikskólanum
Fögrubrekku, sem er sami leikskóli og er í götunni minni.
Ég hætti í Nóatúni vegna margra ástæðna, sótti um þarna og fékk
vinnuna
Gaman að segja frá því líka að þetta er sami leikskóli og ég var
sjálfur á þegar ég var lítill.
Svo kom gamlárskvöld og við vorum með smá matarboð þá, en guð minn
góður hvað mér fannst skaupið leiðinlegt, fyrir utan eitt atriði
"Já þetta er leikur sem aldrei hefur verið leikinn" hahaha
Núna á föstudaginn átti svo leikskólinn sem ég vinn á 30 ára
afmæli, og að því tilefni var afmælisveisla í leikskólanum.
Foreldrum boðið, í tertur og kaffi. Sama kvöld og veislan í
leikskólanum var, kom Sólveig í bæinn og ætlaði að vera hjá mér, en
fjölskylda Stefáns, besta vinar míns hafði boðið okkur öllum í
mat.Pabba, mömmu, mér, Sólveigu, Kötu og Nonna. Þar var
pottréttur í matinn, sem mér fannst rosalega góður. Eftir það sátum
við öll og spjölluðum saman, með ístertuna, sem Stefán Haukur
"gerði" Við lögðum ekki af stað heim fyrr en um tvöleytið, og
þegar við Sólveig stóðum í forstofunni heima, semdi Stefán sms,
þannig ég hringdi í hann. Útúr því samtali kom að hann væri svangur
og langaði í pylsu.
Stefán kom og sótti okkur Sólveigu þó við værum nýkomin heim, og
við fórum með homum og fengum okkur öll pylsu hehe
Á laugardaginn var svo þrettándinn, og Stefán hafði sagt okkur
Sólveigu kvöldið áður að hann og Maggi ætluðu að sprengja flugelda
um kvöldið. Þannig við ákváðum að skella okkur með, og keyrðum öll
fjögur uppá Hafravatn, þar sem Maggi og Stefán slógu upp sinni
eigin flugveldasýningu
Hún var nú bara mjög flott sko, og eftir að hafa klárað að sprengja
fórum við bara út að rúnta, og komum við í Smáralind svo Stefán
gæti fengið sér heitan kaffidrykk í sjálfssala.
Núna er Sólveig ástin mín byrjuð í skólanum aftur eftir jólafrí,
og ég er bara að vinna á fullu. Ég er svo annaðhvort að fara í
Sandgerði um helgina, eða þá að Sólveig kemur í Kópavoginn og
svona.
En já ég held þetta sé nú það helsta sem er búið er að gerast hjá
mér síðustu daga, þannig ég segi bara bless í bili þangað til
næst.
Og svona í lokinn þá óska ég öllum sem lesa þetta gleðilegs nýs
árs, og þakka fyrir það gamla. Ég þakka sérstaklega Sólveigu Björk
ástinni í lífi mínu, Stefáni Hauki, og Magnúsi fyrir frábæran
þrettánda.
Tómas Kári þakkar fyrir sig....
Elska þig Sólveig mín, meira en allan heiminn.....Takk fyrir
síðasta ár, og takk fyrir að gera mig svona hamingjusamann eins og
ég er í dag(L) Elska þig að eilífu (L)
»
22.12.2006 19:13:30 / tígurinn
Jæja nú gerist kraftaverk. Tómas
Kári ætlar að skrifa blogg...
Svona í tilefni af því að það eru alveg að koma jól. Þorláksmessa á
morgun og svona. Þá er siður hjá mörgum að borða skötu...En hvorki
ég eða Sólveig skiljum fólk sem getur sett skötu uppí sig og kyngt
henni svo niður.
Ég skal frekar byrja aftur að drekka mjólk, en að prófa að borða
skötu.
Sólveigu tókst líka að fá mig til að prófa að drekka venjulega
Kókómjólk og venjulega mjólk aftur eftir mörg ár.....Það
gerðist nú þannig að Sólveig ætlaði að gefa mér að drekka og helti
mjólk í glas fyrir sig, og svo óvart fyrir mig, en fattaði það
eftirá.....Þannig ég tók glasið og drakk mjólkina svona til að
prófa, og það var alls ekki svo slæmt.
En já allavega er ég alveg rosalega hamingjusamur núna, ég er
nýkominn heim úr Sandgerði frá Sólveigu, búinn að vera hjá henni
síðan á miðvikudagskvöldið. Þau eru á fullu að undirbúa jólin, ég
fór til Keflavíkur með þeim í gær,. og við krakkarnir skildum mömmu
þeirra eftir í Bónus, og fórum og keyptum meira jólaskraut á meðan.
Svo vorum við bara að keyra og hlusta á jólalög, og við bróðir
hennar báðir að syngja með lögunum sem komiu. Sólveig hefur
örugglega haldið að ég sé stórskrýtinn. Neinei ég vona nú
ekki. Svo fórum við heim að hengja skrautið upp, og um
kvöldið skreytti Sólveig jólatréið heima hjá sér. Ég sé það, að það
verður hennar deild í framtíðinni.
En annars verðum við í sitthvoru lagi á aðfangadag, en Sólveig
kemur svo til mín á jóladag og fer með tengdafjölskyldunni
sinni í jólamat til frænda míns, sem amma mín hefur
venjulega staðið fyrir. Það þýðir semsagt ekki að vakna klukkan
fjögur á jóladag, eins og ég geri venjulega því Sólveig
kemur
En ég vil allavega nota tækifærið og segja þér að ég elska þig
meira en allt elsku hjartans ástin mín.... þú ert það besta sem ég
hefði geta óskað mér að fá, og ég elska þig svooo heitt. Vil bara
að þú vitir það og gleymir því aldrei. Þú ert hamingjan í lífinu
mínu og þú átt hjartað mitt alveg ein Ég vona að þú verðir ánægð
með gjöfina þína, og mundu að ég elska þig endalaust
mikið.......
Ég óska öllum vinum mínum og kunningjum gleðilegra jóla, og farsæls
komandi árs
Sérstakar kveðjur fá:
Sólveig Björk (L)(L)(L) Lov jú(L)
Stefán Haukur
Magnús
Greta Mjöll
Tengdafjölskyldan mín(L)
Takk fyrir allt það liðna á bráðum liðnu ári
Elska þig mest í heiminum Sólveig mín....(L)
Tómas Kári
»
20.11.2006 23:40:29 / tígurinn
Ég er greinilega ekki að standa
undir því sem ég lofaði þeim sem lesa bloggið mitt, með það
að vera geðveikt duglegur að blogga
En ég held að það sé kominn tími til að skrifa eitt blogg afþví ég
hef ekkert skrifað geðveikt lengi......Dagurinn hjá mér byrjar á
því að ég vakna við það að Sólveig vekur mig áður en hún fer í
skólann, svo fer ég að vinna, en fæ samt klukkutíma í hádegismat,
og svo kaffitíma um fimmleytið sem ég nota alltaf til að hringja í
Sólveigu mína
Vel á minnst, þá á stóra ástin í lífi mínu afmæli á morgun, hún
Sólveig Björk, og ég vil nota tækifærið og óska þér innilega til
hamingju með daginn á morgun hjartans elsku ástin mín.....langar
bara að segja þér að þú ert það sem ég elska mest í öllum þessum
heimi, þú ert hamingjan mín og blóðið mitt..........ég veit að
einhverjum finnst þetta örugglega geðveikt væmið, en mér er bara
alveg sama, þú veist alveg hvað ég elska þig heitt, og ég gæti sagt
þér það endaluaust (L) Elska þig meira en mitt eigið líf Sólveig
Björk...(L)
Svo er líka gaman að segja frá því að þegar ég kom heim úr
vinnunni einn daginn í síðustu viku sagði mamma mér að hún hefði
pantað Jólahlaðborð á veitingastaðnum Lækjabrekka.....Þá mun
fjölskyldan, það er Pabbi, mamma, Kata systir ég, og að sjálfösgðu
Nonni, kærastinn hennar, og Sólveig mín......
Ég hlakka alveg rosalega til og við förum snemma í Desember.
Og talandi um Desember, þá getur maður sko bráðum farið að hlusta á
jólalög, "Í kvöld, jólin eru að koma.......Í kvöld jólin eru að
koma" og allt það hehe
Ég hef áður spurt ykkur að því sem lesið bloggið hvort ykkur
finndist ég ætti að fara í hljómsveit......og vitiði hvað? Sólveig
bað mig aðeins að bíða í símanum áðan og mér leiddist eitthvað
þannig ég fór að syngja Svo kom hún aftur, og lét mig ekkert
vita, þannig ég hélt bara áfram að syngja.....og þegar ég hætti
sagði hún að ég ætti að stofna hljómsveit.....Það er aldrei að vita
nema ég geri það, kaupi mér trommusett og verði öll kvöld niðri í
bílskúr að tromma.......Þá verður gaman hjá Sólveigu þegar
trommuhöggin bergmála um allt hús hehehehe
Svo já horfðum við á pink the panther myndina um helgina, og ég
sver það ég get alltaf hlegið af þessari mynd.......Sólveig fékk
allavega að sjá mig í kasti yfir "I would like to buy a hamburger"
HAHAHA
og já fyrir þá sem þekkja mig þá vita flestir að ég drekk ekki
venjulega mjólk úr glasi, ég drakk Kókómjólk þegar ég var yngri í
stuttan tíma, en hætti svo því ég fékk í magan af henni og leið
ekki vel. Margt hefur breyst.....ég kynntist Sólveigu sem einn
mesti Kókómjólkuraðdándi sem ég þekki, og bróðir hennar líka. Enda
eru þau ekki systkini fyrir ekki neitt En allavega þá smakkaði ég
Kókómjólk úr fernunni hennar Sólveigar um daginn, og mér fannst hún
geðveikt góð Núna erum við bæði Kókómjólkur aðdáendur........
Núna koma nokkrar línur um það hvað hefur gerst frá því ég bloggaði
síðast, og þetta er án efa það merkilegasta og yndislegasta sem
hefur gerst í lífi mínu hingað til...
“það kom að því um daginn að ég gat ekki sofnað, ég
uppgvötaði að ég var orðinn svo ástfanginn af Sólveigu að ég fann
innra með mér að þetta væri stelpan sem ég vildi eyða ævinni
með…..Það segja kannski margir að maður sé vitlaus að trúlofa sig
svona ung eins og við bæði erum, en það var ekki það sem ég hugsaði
heldur hugsaði ég bara um þessa stelpu sem ég er svoooo ástfanginn
af” Þá hugsun veit ég að fólk skilur, allavega þau sem eru
ástfangin eins og ég og Sólveig….. Dagurinn minn er þannig að ég
vakna við það að hún vekur mig, svo fer ég að vinna, og ég hugsa
varla um neitt annað en hana í vinnunni(L) En það er líka hún sem
gefur mér orku til þess að vinna og gera það sem ég þarf að
gera…….Hún hvetur mig áfram í allt og hefur endalausa trú á öllu
sem ég geri………og ég verð að viðurkenna að það er einmitt það sem ég
er búinn að leita að hjá stelpu, alveg þangað til ég fann Sólveigu,
þá hætti ég að leita því ég vil ekki neina aðra stelpu……og það mun
ég aldrei vilja…….Og já þú sem ert að lesa þetta
J
þú last rétt……..við Sólveig Björk og Tómas Kári, erum trúlofuð, og
það gerist núna fyrir nokkrum dögum…..Mér fannst ég bara verða að
deila því með ykkur hvað ég er hamingjusamur þessa dagana, og
Sólveig Björk ástin mín…….ég elska þig meira en allt þú geir mig
hamingjusamasta strák í öllum heiminum………..elska þig meira en mitt
eigið líf(L)
Þinn
Tómas Kári
»
05.11.2006 02:05:23 / tígurinn
Jæja þá er komið að
því.......Hérna eru spuringar handa ykkur til að svara
Endilega svarið þessu:
1. Hvað kallarðu mig?
2. Hefurðu heyrt mig syngja, ef svo er hvernig hljómaði ég?
3. Hvað á ég eftir að vera að gera á týpísku laugardagskvöldi eftir
tvö ár?
4. Þegar þú hugsar um mig, hvaða tvö lög dettur þér fyrst í
hug?
5. Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér einhverstaðar, myndirðu
halda að ég væri á lausu eða föstu?
6. Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í
hug?
7. Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit?
8. Hvernig stelpa er ég, og í hvaða týpu flokkarðu mig?
9. Hver er uppáhalds söngkonan/söngvarinn minn?
10. Hvaða lag minnir þig mikið á mig?
11. Hvað giskarðu á að ég verði gömul þegar ég trúlofa mig ?
12. Hversu vel telurðu þig þekkja mig?
13. Hvernig stráka fíla ég?
14. Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma?
15. Hvað er mest einkennandi við mig?
16. Hvaða búðir elska ég að fara í?
ps: ég
elska þig meira en allt Sólveig............dýrka þig útaf lífinu
ástin mín(L)
»
22.10.2006 20:07:25 / tígurinn
Uss heyrðu mig ég hef ekki bloggað
neitt hérna í næstum mánuð.....eða það er akkurat mánuður á
morgun.
En allavega þá er nú slatti búið að gerast hjá mér á þessum tíma
sem ég hef ekert bloggað
Ég er náttúrulega búinn að vinna eins og einhver brjálæðingur,
alltaf alla virka daga, og svo sem betur fer frí flestar
helgar.
Síðustu tvö blogg voru nú kannski ekki mjög skemmtileg, enda hef ég
skrifað skemmtilegri fréttir. En niðurstaðan úr því var semsagt að
ég vann alla dagana sem ég var veikur og fékk ekkert
frí.......
Mér finnst það nú reyndar svona nánast brot á mannréttindum að
láta það bitna á veiku fólki ef það vantar fólk á vinustaðinn þar
sem það er með því að láta það vinna, og neita því um að taka út
veikindadaga sem maður á víst rétt á í hverjum mánuði.
En það skiptir engu máli lengur mér er batnað svo ég er bara
ánægður með það.
Fleiri skemmtilegar fréttir sem ég get skrifað eru þær að ég átti
afmæli fyrir stuttu eða 9 október og varð þá 19 ára Var nú bara
nokkuð ánægður með það afmæli, fékk sjónvarp frá pabba og mömmu,
skyrtu og bol frá Kötu systur og Nonna...
Og fyrir þá sem vilja ennþá meiri fréttir, þá get ég sagt ykkur að
nokkrum dögum seinna fékk ég bestu gjöf sem ég hef nokkurtímann
geta óskað mér......Ég er kominn á fast með fallegustu,
yndislegusu, frábærustu, og sætustu stelpu sem ég gat óskað
mér. Ég gæti haldið svona lengi áfram, en ég held að Sólveig viti
best sjálf hvað mér finnst um hana, og hún á líka bara að fá að
vita það ein Langaði bara að deila því með ykkur að ég hef aldrei
verið jafn hamingjusamur og ég er núna
Svo er ég nýkominn úr grillveislu sem bróðir pabba hélt. Var nú
reyndar þar svoldið lengur en ég ætlaði, og núna er ég bara
nýkominn heim og er sestur í tölvuna.
Ég held það sé ekki mikið meira sem ég ætla að skrifa í bili,
ég vildi bara skrifa smá færslu til sýna ykkur að ég
er lifandi þó ég hafi ekki bloggað í mánuð Þá er ég lifandi
og hamingjusamari sem aldrei fyrr......Og það þakka ég Sólveigu
Björk, kærustunni minni Elska þig ástin mín(L)
Tumi tígur.
»
23.09.2006 14:45:31 / tígurinn
Jæja hvað segir fólkið í dag, ég er
orðinn aðeins hressari, eða svona hausverkurinn er farinn, ég
er ennþá með smá kvef, pínu hósta og svona. En samt ekkert
miðað við hvernig ég var þegar ég var sem veikastur. Nú er
bara að taka hóstasaft reglulega og vítamín, og kýla þetta
endanlega niður.
Ég hed samt ég hafi aldrei orðið jafn pirraður og þegar ég fékk
ekki að vera heima EINN heilan dag í síðustu viku þegar mér leið
miklu verr en mér líður í dag.
Ég bloggaði nú bara um það helsta sem ég var pirraður yfir í
síðasta bloggi, og vegna þeirra viðbragða sem ég hef fengið
hef´ég ákveðið að birta allt það sem mér finnst um framkomu
vinnuveitanda þegar svona kemur upp.
Í mínu tilviki föstudaginn 15 september síðastliðinn vaknaði ég og
fann að ég var orðinn veikur ég hóstaði eins og einhver
brjálæðingur og hafði gert alla nóttina. Ég fann að ég var í engu
standi til að fara að vinna, og vildi vera heima til að jafna mig,
ég hringdi þessvegna í vinnuna og tilkynnti um veikindi og að ég
myndi ekki mæta.
Hálftíma seinna er svo hringt aftur úr vinnunni og
spurt hvort ég geti unnið part af föstudeginum, og voru mér boðin
hærri laun gegn því að vinna veikur. Ég
fór nú að vinna, en það hefði ég ekki átt að gera því daginn eftir
varð ég bara veikari.........mér voru boðin hærri laun vegna þess
það vantar fólk í vinnuna mína á daginn, en ég sé ekki að það sé
heimilt eða löglegt að láta fólk vinna veikt, og múta því með hærri
launum. Ég bendi á að
fólk hefur mismundandi skoðannir á því hvenær maður telst veikur og
hvenær ekki..... En á móti kemur að ef þú telur þig veika
eða veikan þá getur enginn annar sagt þér að þú sért það
ekki Fyrir utan það að flest allir sem ég hef talað við
eru sammála mér um það, að það er ekki gaman að vera í
þjóunstustarfi, hóstandi, snýtandi sér og afgreiðandi fólk
samtímis. Mér finnst það hvorki gasman eða
sérstaklega geðslegt. Ég
bennti á þetta í vinnunni en sá sem ég talaði við sagði að sér væri
alveg sama þótt ég þyrfti að gera þetta á kassanum, hans vegna væri
það í lagi.
Mig langar þessvegna að spyrja ykkur, finnst ykkur
þetta ekki fullt langt gengið, ég meina hvar er samviskan sem fólk
á að hafa. En ég veit líka að fólk er misjanft, sumir telja sig
alltaf geta gert allt, sama í hverng ástandi það er. Og það er gott
í sumum tilvikum að hafa svona trú á sér, því stundum .þarf maður á
því að halda í staðinn fyrir að vorkenna sér
of mikið.
En samkvæmt lögum á maður rétt á sínum veikindadögum ef þú vaknar
veikur því þú getur auðvitað engu ráðið um hvenær það gerist. Svo
hef ég heyrt á sumum stöðum ef maður er veikur þá er þér frekar
sagt að vera heima til að mæta ekki í vinnuna og smita aðra. Það er
líka rökrétt að vissu leti. Og þegar fólk sem ég hef
afgreitt meðan ég var sem veikastur er að segja mér að ég ætti nú
frekar að vera heima hjá mér heldur en að vinna þá er það nú orðið
nokkuð slæmt...Hverju getur maður þá svarað? Ég er að
vinna því það vantar fólk? Það hljómar mjög asnalega, en það er
staðreynd að það er látið bitna á þeim sem eru veikir að það vanti
fólk, sem mér finnst í raunninni einning ólöglegt, því hvað getur
maður gert í því. Það er mál fólksins sem vinnur á stöðum að það
vanti fólk, og mér finnst heimskulegast í heimi að láta það bitna á
fólkinu sem vinnur í búðinni því það er ekki eins og maður galdri
inn fleiri starfsmenn við það.
Auk þess er ekki okkar hlutverk að skipa fólk í stöður. Ég vil
endilega koma því á framfæri að ég er ekki sú týpa af manneskju sem
þykist alltaf geta allt sama í hvernig ástandi maður er. Það er að
vísu alveg til í fólki, og það er alveg til í mér þegar ég
virkilega þarf að hafa trú á sjálfum mér í hlutum sem ég geri....En
þá er "ég get allt ég er tvítugur í dag" ein af uppáhalds
settningunum mínum.
Það má einnig spyrja sig af því hversu langt fólk getur gengið
yfir annað fólk til að fá sínu framgengt En jæja ég þarf að hoppa
í sturtu og drífa mig í klippingu. Mikið að pæla í að snoða mig
hehehehhe......sjáum til og sjáumst. Elska ykkur.......
»
19.09.2006 10:46:05 / tígurinn
Kæri lesandi, ég veit að ég skulda
fastagestum bloggsins, almennilegt blogg.
ALLIR SEM LESA BLOGGIÐ ERU VINSAMLEGA BEÐNIR
AÐ SKRIFA KOMMENT Á
ÞAÐ
En því miður eru síðustu dagar búnir að vera frekar leiðinlegir hjá
mér.......ég er búinn að vera veikur síðan á föstudaginn með hita,
hálsbólgu, hausverk og geðveikt mikið kvef. Það er sennilega bara
ein af þessum haustpestum sem koma alltaf á þessum tíma. En hvað um
það, ég fór að finna fyrir því að ég væri að verða veikur, á
fimmtudaginn en ég fór samt í vinnuna og vann allan daginn.
Það var kannski full bjartsýni því ég vaknaði á föstudaginn með
meiri hita, kvef frá helvíti og ekki má gleyma því að ég
hóstaði þá eins og ég veit ekki hvað
Ég hringdi mig inn veikan og vinnan tók það gott og gilt, því það
getur auðvitað komið fyrir alla að verða veikir.
En svo hringir síminn aftur stuttu seinna og þá var ég beðinn að
vinna frá ellefu til tvö...
Ég var nú ekki alveg að samþykkja það fyrst, en fékkst samt til
þess fyrir rest. Fór semsagt að vinna þó ég væri veikur og með
hita, en þið getið ímyndað ykkur ef þið hafið unnið með hita og
hausverk hvernig það er. Það er allavega voðalega ruglandi, og
fyrir mig verður maður bara utan við sig.
Ég fór svo heim um hálf þrjú, fékk mér að borða, og lagði mig,
svaf til eitthvað fimm, fór þá frammúr og reyndi að borða en kom
engu ofan í mig. Þá fór ég bara aftur og lagði mig, og viti
menn ég sofnaði og svaf til hálf ellefu. Hálsbólgan var svo farin
að minka á sunnudaginn og hvarf með deginum.
En hóstinn var samt langt frá því farinn, og það er ekki geðslegt
að segja það en ég hóstaði eiginlega bara slími á sunnudaginn.
Tekið skal reyndar fram að þessu tilefni að ég fór út á sunnudaginn
því ég hélt að þetta slím væri nú ekki mikið.
Og afþví að ég fór út á sunnudaginn þá fór ég að sjálfsögðu í
vinnuna í gær, enda ekki hægt að fara út fyrir sjálfan sig, og mæta
svo ekki í vinnuna á virkum degi deginum eftir.
Ég hinsvegar sá það þegar ég kom heim að það var nú ekki mjög
gáfulegt, þá hvorki að fara út fyrir mig eða vinnuna, en ég fór í
vinnuna því ég skildi og er með vit til þess að maður fer ekki að
leika sér úti, og mætir ekki í vinnuna daginnn eftir þegar þú ert
búinn að vera veikur. En ég sé reyndar að það var kannski ekki það
gáfulegasta sem ég gerði, því annars væri ég betri í dag en ég
er.
HINSVEGAR! eins
og þú last áðan þá vakanði ég á föstudaginn og var þá veikur, með
hita hálsbólgu, kvef og hósta. Og ég fór samt að vinnna, ég hefði
alls ekki gert það nema afþví ég var beðinn um það, vegna þess að
það vantaði fólk. Og ég er nú á því að hver einasti dagur sem maður
fær að hvíla sig þegar ég var eins og ég var á föstudaginn skilar
því að þú verðir betri næsta dag. En meiningin með þessum pistli á blogginu
mínu er sú að mig langar að spyrja ykkur öll að einu?
Eins og við öll vitum verðum við einhvertímann veik, yfirleitt fær
maður engu ráðið um hvnær það gerist eða hvernig veikindi það eru.
Ég vil taka fram að það líka mismundandi hvað við flokkum
undir veikindi. Sumir eru rosalega harðir af sér og finnst þeir
aldrei vera veikir, aðrir þola minna og eru oftar veikir, svo kemur
þessi flokkur þeirra sem verða sjaldan veikir, en þegar það gerist
þá verðurðu samt veikur.
og það má spyrja sig að því þegar fólk er að taka sér veikindafrí,
og er svo kannski ekki veikt, hvernig er HÆGT að láta það bitna á
fólki sem er veikt, ef það er í flokkum sem verður sjaldan
veikt.
Svo er líka annað að maður getur ekki alltaf miðað við sjálfan sig,
því maður er ekki alltaf sammála um það mál sem um ræðir. Og annað
sem ég skil ekki, ef það vantar fólk í vinnu? Hvernig er þá hægt að
láta það bitna á fólki sem tekur sér frí vegna veikinda. Það er
alls ekki það sama. Og ég held að þeir sem myndu pæla í þessu sjá
það allir að það er ekki mál þess sem er veikur að það vantar fólk
á staðinn.....Hvað á sá veiki að gera í því???? Viljiði endilega
segja mér það? ég held því statt fram að það sé ekki hans mál því
ef manneskja er veik þá er svosem lítið sem hún getur gert.
Ég veit að þetta blogg hljómar kannski eins og
ég sé einhver lúði sem er bara að væla, en ég er bara orðinn
pirraður á því að fólk kann ekki að taka tillit til hvers annars í
dag, fólk er stundum alveg að missa sig, í staðinn fyrir að segja
já allt í lagi, við reddum þessu, það er betra að þú jafnir þig og
komir frískur í vinnuna?
Ég held það sé betra........það er allavega mín skoðun, hver er
ykkar skoðun. Endilega kommentið, og segið það sem ykkur finnst um
allt það sem þið eruð búin að lesa frá mér. Ég er vonandi ekki
þessi persóna sem heldur að ég sé aumingji, en ég hef því miður
verið flokkaður undir það finnnst mér....
Virðingafyllst Tumi tígur.
»
30.08.2006 00:09:52 / tígurinn
Þá er komið að ennþá einu blogginu
úr smiðju Tumans....
Það er svosem ekki mikið að frétta af sjálfum mér, annað en vinna
vinna og meiri vinna. En þannig er nú bara vikan, vinna frá ellefu
til sjö alla virka daga, en ég á reyndar frí allar helgar sem mér
finnst æðislegt.
Til dæmis um síðustu helgi gerði ég mikið hehe, á laugardeginum fór
ég í fertugsafmæli til kona frænda míns, bróður pabba. Mikið stuð
þar og margir komnir í glas stuttu eftir að afmælisdjammið
hófst.
Ég og pabbi skelltum okkur til þeirra, og keyrðum á einum bíl.
Þegar ég var búinn að vera þarna í svona tvo klukutíma talaði ég
við Magga vin minn og við ákváðum að skella okkur út.
Ég kvaddi, þakkaði fyrir mig, rændi bílnum og keyrði heim til
Magga, þaðan keyrðum við svo heim til mín á sitthvorum bílnum, og
skiluðum bílnum sem ég var á því það var mömmu bíll. Golfinn var í
bremsuviðgerð
Maggi renndi svo í innkeyrsluna mína á sömu mínútu og ég, og ég
skipti um bíl bara, og þaðan var bensínið stigið í botn að hætti
stráksins og við farnir útí buskan. Komum við í 10 11 og
NÖMMUÐUM okkur upp með gæða nammi á
nammibarnum
Eins og flestir hafa tekið eftir eru skólar landsins komnir á fullt
þó ég sé að vinna, það er kannski ekki merkilegt að skrifa um það,
nema því það var akkurat á þessum tíma fyrir tveimur árum sem ég og
Maggi vinur minn kynntumst, og hér með þessu bloggi vil ég minnast
nokkra atvika sem hafa hent okkur saman síðan þá.
Það byrjaði eiginlega allt á saklausum íslenskutíma með
Ragnheiði.....ég nýbyrjaður á almennri braut II og þekkti engan
þegar ég kom í fyrsta tímann. Þá sá ég Magga án þess að vita hver
það væri og spurði hvort ég mætti ekki sitja við hliðina á honum
þar sem hann sat einn. Það var ekki aftur snúið eftir það. Við
spjölluðum ekki mikið saman þann tíma ég man ekki einu sinni um
hvað. En svo kom tímabil þar sem við settumst alltaf í bláu sófana
frammi við sjónvarpsskjáninn, með kók og nammi og kynntumst þar
betur. Sátum þar mínútum saman og spiluðum Test Drive bílaleik.
Svo fórum við að verða samferða áleiðis heim og kynnast ennþá
betur.
Ég er eiginlega feginn að hafa kynnst Magga því saman höfum við
þurft að þola mikið, til dæmis heila önn með dönskukennara sem við
hötum báðir, og þar með vinkona mín sem sat fyrir aftan okkur.
Þessi ónefndi kennari fyllti hausa minn, Magga, og Ellu, og allra
annara sem voru með okkur í tímum af þeimaorðum. Bara karakterinn
hennar og hvernig hún var, það var nóg til að ég og Magg fengum
fljótt ógeð.
Svo er gaman að segja frá "æðislega" stræðfræðikennaranum sem við
vorum með heila önn, í síðasta tíma frá fjögur til fimm á
þriðjudögum. Skulum ekki fara frekari orðum um þá tíma nema þeir
einkenndust af skrækjum og gelgjuhrópum, og þá ekki frá stelpunum
sem voru með okkur í tímum. Maður hefði kannski frekar átt von á
því eða jafnvel frá strákunum því þeir geta alveg verið gelgjur
líka. Maggi veit að ég kann að glegjast til dæmis "omg ég er
SylvíaBjörg skiluru" eða nei fyrirgefðiði þetta var aðeins
vitlaust"
En allavega þessi hróp komu úr munni kennarans,og ég gleymi því
seint þegar við vinir þurftum að einhverjum ástæðum að sitja fremst
við kennaraborðið. Svo vorum við að læra, og einhverjir strákar
fyrir aftan okkur að tala. Kennarinn stendur upp og skrækir
USS........og vá! ég hélt að ég fengi hjartáfall á staðnum.
Þeir sem hafa verið með þennan kennara skilja alveg örugglega hvað
ég á við.
En allavega batnandi mönnum er best að lifa, eða það héldum við
Maggi líka þangað til við mættum saman í enskutíma á önninni, og
fengum kennara, sem er ekki hægt að lýsa með neinum orðum. Skulum
bara segja ekkert sérstaklega spes tímar þá önnina í ensku
En hættum að tala um skólann því ég á mér líf utan skólans.
Allavega komst ég að því að Maggi býr nú ekki langt frá mér, og við
höfum brallað margt saman bæði heima hjá mér og hjá honum og á
allskonar stöðum líka. Má þar fyrst nefna allar okkar ferðir á
American Style, hvernig ég borða hamborgara þar.
Ferðina okkar með Stefáni vini mínum sem ég kynnti síðan Magga
fyrir fljótlega, en þeir voru saman í grunnskóla. En í þeirri ferð
keyrði Stefán einmitt á bílnum sínum, og fór meðhöndlanlega í
hirngtorg hjá Mc Dolands í Smáranum svo ég segi nú ekki annað
Svo má nefna fullt af atvikum eins og til dæmis þegar ég fór og
keypti mér útgáfutónleika Í svörtum fötum með Meðan ég sef
plötunni. Við fórum heim til mín og kíktum á gripinn.
Svo ætlaði ég eitthvað fara niður og fá mér vatn, söng með Meðan ég
sef langinu, labbaði úr stofunni, beint á handriðið við stigann og
datt þar niður.
Helst ber þó að nefna hið margumtalaða B og L atvik, en í stuttu
máli breyttum við Maggi merkingunni fyrir þetta góða bílaumboð, sem
bæði ég og Stefán auglýsum fyrir með að keyra um á bílum frá því, í
líkaamsræktarstöð sem fékk nafnið Bumbur og léttingar, og er oft
kennt við Björn í Bumbum og léttingum (þetta er dæmi um hvernig
við skiljum hvor annan
Fyrir utan alla þessa vitleysu og marga aðra til, þá erum við
Maggi yfirleitt hressir og höfum jú upplifað margt saman, eigum
báðir systur sem er flutt að heiman, eina eftirlifandi ömmu af öfum
og ömmum, búum báðir í einbýli, og keyrum báðir um á silfuðum Golf,
með sömu ´bókstööfum í númerinu.
Við erum einnig mikið fyrir að syngja þegar við erum að
keyra, og látum þá heyra hvað mest í okkur.
Má þá nefna að við höfum mjög svipaðan tónlistarsmekk, en við
syngjum svona helst með öllu því sem við fílum og finnst
skemmtilegt. Eigum það líka til að gelgjast og bulla inní sum lög
ef við kunnum ekki textana .Eins og ég sagði áðan strákar geta
verið gelgjur;
Maggi hefur óneitanlega sett svip á líf mitt á framhaldsskóla
árunum eins og þegar hann og Stefán fóru út að borða, Stefán fær
sér mikið kryddaðan hamborgara, og svo ruglaðist stelpan sem kom
með matinn og Maggi fékk þann mikið kryddaða.
Hann er nú á lausu drengurinn sem ég skil ekki, hann er alltaf að
stríða mér afþví ég vinn svo mikið innan um stelpur svo ég spyr nú
bara á móti hvernig væri að ná sér í kókgellu? hann hefur einning
séð ´þa hlið á mér þegar ég var á föstu, og það var einmitt með
stelpu sem hann þekkir. Honum var nú alveg sama og treysti mér
alveg, enda veit hann að ég geri ekkert af mér
Hann veit að ég er vinur vina minna, og ég vona að við verðum vinir
svo miklu lengur en komið er. Það er svoldið langt í að hann nái
mér og Stefáni í vinskap, en við látum það gerast bara.
Tígurinn hefur bloggað og ég vil skila kærri kveðju til Magnúsar
Stefánssonar, stráksins sem ég tala nú við á hverjum degi og ég
vona að þeir verði miklu fleiri Takk fyrir mig Maggi og takk
fyrir síðustu tvö ár. Ég held ég ljúki þessu á að við segjum báðir
að við mælum með GreenDay og silfruðum Golf fyrir alla
Þinn vinur,
Tómas Kári.....
B&L get ég aðstoðað
»
23.08.2006 03:15:54 / tígurinn
Nei sko ég er að blogga! og ég bloggaði
síðast í fyrradag eða eitthvað
Já ég er svo oft buinn að tala um að ég þurfi að bæta mig í
bloggmennskunni.
Nú skal þá koma að því að það líður stutt milli tveggja
blogga.
Siðustu dagar eru nú bara búnir að vera ágætir, ég klaraði að
vinna i gærkvöldi, kom heim og borðaði og fór svo út með Hildi
frænku minni.
Þegar við erum búin að vera úti í svoldinn tíma þá hringir síminn
minn, og það er Stefán sem spyr hvort ég nenni aðeins út.
Við ákveðum að fara saman út, og við Hildur keyrðum heim til
Stefáns, fórum þar úr Golfinum mínum og yfir í bílinn hans Stefáns,
en svo skutlum við Hildi heim á´bílnum hans Stefáns, og svo tók
flippið við. Við rúntuðum um bæinn, hækkuðum vel í græjunum hans og
sungum með nánast öllum lögunum sem við spiluðum. hahahha mjög
spes það
Samt alveg frábært að taka út svona smá kast svona í enda
sumars.
Já ég sagði í enda sumarsins, því það hafa örugglega allir tekið
eftir því að flestir menntaskólar landsins byrja á morgun, eða eru
byrjaðir nú þegar. Sem þýðir að Stefán verður á fullu í MK í vetur,
og tekur á því einn veturin ennþá
Ég hef ákveðið að vera að vinna í Nóatúni í vetur, prófa að eiga
pening hahah byrjaður að safna mér fyrir bíl sem ég ætla að kaupa
á næsta ári, og gefa sjálfum mér í tvítugsafmælisgjöf
Annars var nú agætt í vinnunni í dag, talandi um skólana þá var
Nóatún hálf lamað í morgun, fáir að vinna miðað við síðustu daga
hehe
og svo þegar það kom hádegismatur hja mér, og ég var að fara heim
var kallað á mig. Þegar ég snéri mér við sá ég að það var Maggi
vinur minn sem kallaði á mig. Hann hafði verið í Smáralindinni að
kaupa bækur fyrir skólann.
Það endaði með því að við ákváðum að fara saman og fá okkur pulsu.
Mjög góður hádegisverður í góðum félagssakp
Aðrar fréttir af Magga viin mínum, hann er komm heim frá spáni, og
er hættur í Byko.
Já það er eitthvað með okkur vinina og að skipta um vinnu þessa
dagana. Ég hætti í 10 11, og fór í Nótatún, sem er miklu betra
finnst mér og Maggi hætti í Byko og er nú kominn í Kók
Vífilfell
Og það er mjög fyndið, en Maggi keyrir einmitt Kók, og aðrar
gosvörur frá Vifilfelli til okkar í Nóatúni
En fyrst ég er að blogga svona um vini mína ´nótt, þá er æðislega
gaman að segja frá því að Sylvía ein besta vinkona mín er komin í
menntó, og nú verður sko stuð hjá henni á morgun að vakna, og fara
í Fjölbrautarskólann í Garðabæ
Gangi þér nú ofboðslega vel elskan mín
En já þegar Stefán og mamma hans borðuðu hjá okkur hérna á
sunudaginn, þá gerðist margt eftir matinn. Til dæms það að þegar
við vorum nýbúnir að borða, þá fórum við inn, og settumst báðir
niður í sófann minn á sama tíma. Og hann brakaði! Það var bara
fyndið Við verðum að fara að passa okkur að borða ekki svona
mikið Stefán!
Svo kom Stefán allt í einu með spurningu sem ég hef aldrei pælt í,
og ég átti ekkert svar við. Hann spurði mig hvort mér hefði aldrei
dottið í hug að byrja að æfa söng. Staðreydin er bara að ég hef
kannski svona lítillega spáð í það, en það hefur ekkert orðið úr
því. Hinsvegar finnst mér rosalega gaman að syngja, og syng oft og
mikið. Það vita Stefán og Maggi mjög vel. Enda taka þeir nú oft
undir með mér þegar við erum að rúnta. Og bullið sem kemur
stundum uppúr mér og Magga þegar við erum eitthvað að
grínast Það er ómetanlega fyndið.
Ég syng samt mjög mikið og oft á dag. Þegar ég er einn
einhverstaðar að gera eitthvað, þegar ég er að keyra, þegar mér
leiðist, og þegar það er lítið að gera í Nóatúni til dæmis. Syng
samt ekki í sturtu ef einhver skyldi vera að hugsa það hahah En
fullt af fólki sem gerir það örugglega.
Ég er nú löngu kominn með nokkur lög sem ég myndi pottþétt vilja
syngja ef útí það færi hehe
En ég held þetta sé komið agætt í bili, ég ætla að fara að sofa,
og sofa til svona níu - tíu í fyrramálið, vakna þá, borða og keyra
í vinnuna
Svo er það bara spurning......Ef ég og vinir mínir myndum stofna
hljómsveit, og spila, myndirðu þá koma og hlusta á okkur spila og
mig sygja hehehe ? Eva sagðist pottþétt ætla að koma ef ég myndi
syngja ber að ofan hehehe
Hvað með þig?
Endlega skrifiði komment a bloggið,
Takk í bili,
Tumi tígur. tumithetwister@hotmail.com
»
21.08.2006 00:56:46 / tígurinn
:Þá er menningarhelgin búin
Það er svosem kannski ekki neitt ´serstakt gleðiefni, því það var
geðveikt gaman En já það líður alltof langt milli blogga hjá mér,
enda kannski ekki mikið að skrifa um...
Maður vinnur bara svo mikið, eða ég er náttúrulega að vinna alla
virka daga frá ellefu til svona sjö, og er kominn heim uppúr hálf
átta.....þannig líða allir dagarnir, nema auðvitað
helgarnar En ég er að fíla það að vinna í Nóatúini, og fer
í Smáralindina á hverjum morgni.
Legg bílnum mínum alltaf fyrir ofan Smáralindina, á planinu og er
orðinn svoldið pirraður á einum beygjuljósum sem eru einmitt á
gatnamótunum sem ég þarf að keyra yfir.
En það er gaman að segja frá því að Maggi er núna kominn heim, en
hann fór erlendis í tilefni afmæli pabba síns
Ég væri nú alveg til í að fara til útlanda sko, ef ég væri ekki
flughræddur væri það örugglega stuð. Svo er kannski spurning um að
prófa að fara til útlanda og sjá hvort það er jafn hræðilegt og mér
fannst það síðast
Helgin var alveg frábær, byrjaði á föstudaginn þegar ég kláraði að
vinna, þá sat ég uppá lofti í Nóatúni, og var að gera upp kassann,
þegar ég fékk sms frá Sylvíu minni, en hún spurði hvort ég nennti
að fara út. Ég hafði ekkert betra að gera þannig ég sendi til baka
að ég væri til, svo stuttu seinna talaði Hildur frænka mín við mig
og spurði hvort við ættum að fara út, þannig ég sameinaði það bara
og fór út með Hildi og Sylvíu.....mjög gaman vorum bara að rúnta og
spjalla saman, fórum svo á leikskóla því Hildur vildi það og jújú,
við stoppuðum þar í smástund og róluðum....maður er aldrei of
gamall til að róla.
Eftir að ég skutlaði Hildi og Sylvíu svo heim tók meira djamm við,
eða þá keyrði ég heim til Stefáns í Álfatúnið, en þá tók hann við
stýrinu á Golfinum og við fórum tveir út að rúnta. Vorum bara að
krúsa í Kópavoginum þetta kvöld, með viðkomu í 10 11 fyrrverandi
vinnunni minni og keyptum okkur nammi á nammibarnum á helmingsverði
eftir miðnætti á föstudegi, semsagt laugardegi
Við vinirnir vorum úti alveg til eitthvað þrjú um nóttina nánast,
en fórum þá heim að sofa.
Að morgni menningarnætur vaknaði ég, og var drullu illt í maganum,
þaníg ég fór fram, reyndi að borða, en fór svo bara og lagði mig
aftur. Þegar mér leið aðeins betur fór ég í tölvuna og inná msn, og
talaði þar við Sylvíu mína í örugglega svona tvo tíma, og á
hálftíma fresti sögðum við hvort öðru hvað okkur leiddist
mikið.
Á endanum bað Sylvía mig að koma með sér að sjá Í svörtum fötum
spila á lækjartorgi, á Glitnissviðinu.
Ég var nú alveg til í það svosem enda mjög góð hljómsveit og Sylvía
ein besta vinkona mín í heiminum. Ég pantaði pizzu, borðaði, skipti
um föt, tók mig til og sótti svo Sylvíu.
Við keyrðum í mikilli umferð niður að Laugarvegi, en fengum sem
betur fer stað á frábærum stað á Njálsgötunni alveg við
Austurbæjarbíó.
Þaðan löbbuðum við svo saman niður Laugarveginn.
Hægt! því það var svo mikið af fólki, og
það heimskulegasta sem við Sylvía höfum séð lengi var skemmtiatriði
á miðjum Laugarveginum sem sumir horfðu á og þar með myndaðist
stífla. Við erum samt svo lítil að við tróðumst saman í gegn.
Skemmtilegur troðningur sem ég gleymi ekki í bráð. Kona sem ýtti á
mig og Sylvíu líka þannig við fengum smá flug og köstuðumst áfram
nokkrum sinnum. Svo komum við niður á torg, og sáum strákana spila.
Mjög flott sko, skemmti mér geðveikt vel.
Við vorum eiginlega alveg fremst, sem var alveg frábært. Sylvía
nýtti sér það í botn, og var svoldið ofvirk á myndavélina sem hún
hafði tekið með sér.
Fyrir aftan okkur var mikið af fólki, meðal annars kona í
hjólastól, og kall sem var búinn að drekka eitthvað svoldið og
dansaði fyrir framan konuna. BARA fyndið, en okkur sýndist konan
alveg fíla það enda sat hún með flösku líka. Þetta var
eitthvað það fyndnasta sem við höfum séð lengi.
Eftir tónleikana fórum við svo og spjölluðum aðeins við Jónsa
kallinn. Tókum nokkrar fleiri myndir, og eina af mér og honum sem
ég er nú bara mjög sáttur við.
Eftir tónleikana fórum við svo í 10 11 í Austurstræti og keyptum
okkur að drekka, og löbbuðum svo upp allan laugarveginn aftur, og
niður á Snorrabraut, og sáum þaðan flugeldasýningna.
Mér fannst hún einum of stutt fyrir minn smekk, og meðan ég man ég
stóð ÚTI á meðan flugeldarnir þutu upp og sprungu.
Eftir sýninguna keyrðum við Sylvía svo bara heim, alveg geðveikt
hratt eða hitt þó heldur, enda umferð dauðans, og það var ekki fyrr
en á Kringlumýrarbrautinni sem ég gat loksins keyrt á eðlilegum
hámarkshraða.
Ég fór svo bara heim og svaf eftir það, vaknaði svo við það í
morgun að Stefán besti vinur minn og mamma hans Olga, voru að koma
í mat. Dagurinn fór í það að undirbúa matarboðið, og pabbi og mamma
fóru að sjálfsögðu í Bónus.
ég og Sylvía vorum einmitt að tala um daginn áður hvað Bónus er
þröng og lítil búð, enda fór ég ekki með Sylvía ég var heima og er
stoltur af því
En já kvöldið er svo bara búið að vera frábært, ég og Stefán fórum
bara og tjilluðum inni hjá mér eftir matinn, og höfðum það gott.
Alltaf gaman að hitta þessa fjölskyldu öðru hverju.
Núna er ég bara að spjalla við Sylvíu, og ég ætla að fara að hætta
þessu rugli bara
ég vona að þið hafið öll skemmt ykkur vel í gær, og sum kannski
eins og fulli kallinn sem dansaði fyrir konuna hahahaaha Sylvía
veit hvað ég á við En allavega takk í kvöld, og Hildur frænka,
Stefán og Sylvía fá öll sérstakar kveðjur. Takk fyrir yndislega
helgi.
Dýrka ykkur.......
Tumi tígur.
»
13.08.2006 02:57:24 / tígurinn
Jæja hvernig er það er kominn tími
á blogg eftir allan þennan tíma ?
Ég hef ekki bloggað í meira en tvær vikur ég bara einhvernveginn
hef ekki haft tíma til þess enda mikið búið að gerast hjá mér
síðustu daga sem ég get núna sagt ykkur frá
Fjölskyldan hefur bætt við sig ennþá einum bílnum í síðasta
mánuði Föstudeginum fyrir afmælið hans pabba hringdi ég í hann og
spurði hvort ég ætti ekki að sækja hann (það var rignig og leiðindi
minnir mig) Pabbi sagði að ég þyrfti þess sennlega ekki því hann
kæmi sennlega heim á nýja bílnum.
Ég varð frekar mikið hissa, ég meina pabbi hafði sagt við mig að
hann langaði í nýjan bíl, en ég varð frekar hissa þegar ég komst að
því að hann hafði látið verða af því.
Stuttu seinna kemur pabbi svo heim og þegar ég kem niður sé ég
glænýjan Toyota Rav4 standa í innkeyrslunni.
Mjög flottur bíll sem pabbi fékk, kampavínsbrúnn með leðri,
topplúgu og alles Pabbi bara orðinn töffari
Það má eiginlega segja að pabbi hafi gefið sjálfum sér bílinn í
afmælisgjöf, því hann átti afmæli þriðjudaginn 18. Julí, og bauð þá
allri fjölskyldunni sinni, það er (mömmu, mér, Kötu systur og
Nonna) á Hereford Steikhús á Laugarvegi.
Ég hafði aldrei borðað þar áður en hafði heyrt að maturinn þar
væri mjög góður. Það var svo mikið á matseðlinum að ég átti í mestu
vandræðum með að velja mér mat.
Ég endaði á þvi að gera eins og ég gerði oft þegar ég var lítill,
að velja það sama og pabbi
Og í þetta skiptið virkaði það mjög vel, við feðgarnir fengum
okkur eitthvað nautafille eða bara "bola" eins og pabbi kallaði það
haha Og váá þetta var svo gott kjöt, alveg beinlaust og ekkert
rusl á því bara alveg eins og ég vil hafa kjöt.
Held að Kata og Nonni hafi fengið sér lambakjöt, en allavega fórum
við þaðan út öll mjög sátt með matinn
Annars er ég HÆTTUR i 10 11 Laugarlæk hætti
fyrir svona hálfum mánuði, eða ég sótti um hjá Nóatuni, og
var beðinn að koma í viðtal í Smáralind Nokkrum dögum seinna var
það svo komið á hreint að ég fékk vinnuna í Noatúni Smáralind.
Ég kláraði eina helgi í Laugarlæk og á laugardagskvöldið fór ég úr
10 11 peysunni inná kaffistofu í síðasta skipti og skildi hana
eftir. Morguninn eftir vaknaði eg, borðaði og klæddi mig....Keyrði
svo í Smáralindina og labbaði inná aðra hæð í Nóatún.. Þar var
tekið rosalega vel á móti mér og ég fann rauða peysu og fór að
afgreiða undir Noatúnsmerkinu Ég vinn í
kassadeild Nóatúns og er bara mjög sáttur, miklu betra að vera
þarna. Situr allan daginn og afgreiðir í staðinn fyrir að standa
allan daginn afgreiða og gera allt í 10 11
Ég er a föstum vöktum frá 11 til 7 alla virka daga, og svo
eitthvað um helgar ef ég er beðinn og get unnið, annars á ég frí,
og auðvitað öll kvöld eftir vinnu, kominn heim svona hálf átta á
kvöldin.
Plús það að það er geðveikt skemmtilegt fólk að vinna þarna. Til
dæmis er ég vinna með einni bestu vinkonu Guðlaugar, vinkonu
minnar, sem heitir Rakel....En Gulla vinnur einmitt líka
í Nóatúni, bara ekki sömu búð og við .
Það eru eiginlega bara stelpur í kassadeild Nóatúns, fyrir utan
mig auðvitað, en ég er bara mjög sáttur í vinnunni. .....
Svo er ég núna byrjaður að safna í sjóð, tek alltaf af launum
mínum og safna. Það verður nú ekki lengi að safnast góður peningur
ef maður vinnur mikið, og fyrst ég er kominn á fastar vaktir ætti
það að ganga hratt
En ég er búinn að ákveða að safna, og kaupa mér annan bíl á næsta
ári, árið sem ég verð tvítugur, er þá ekki tilvalið að gefa sjálfum
sér bíl í tvítugsafmælisgjöf? við erum að tala um bíl að verðmæti
rúmlega hálfri miljón finnst að mjög góð hugmynd
Svo er það aðal-atriði mánaðarins! Þann 8. ágúst siðasta atti besti
vinur minn han Stefan Haukur afmæli, og er strákurinn nú orðin 19
ára gamall En á þeim degi seldi hann líka fyrsta bílinn sinn,
og var þá búinn að fá sér þann bíl sem hann keyrir um á i dag.
Nokkuð goð afmælisgjöf það En Stephen King skilaði svo sannarlega
sínu á fyrsta ári Stefás með bilprof, og ég man alltaf eftir 8
ágúst 2004....Það kvöld, var kvöldið sem Stefán Haukur brunaði
fyrst um götur borgarinnar. Mjög minisstætt kvöld hjá okkur vinuum.
Enda var það sumar (sumarið 2004 í ágúst) algjör snilld. Fórum nú
nokkrum sinnum í Öskjuhlíð keyrandi og í Nauthólsvik. Fyrir
utan þetta höfum við svo keyrt á óteljandi marga staði saman,
fórum einu sinni í road trip á einum degi, og keyðum á Selfoss,
Laugarvatn, Eyrarbakka, Hveragerði og Þingvelli minnir mig, enduðum
svo í Reykjavík aftur eftir stóran rúnt hehehehe
En já ég vildi bara nota tækifærið og oska Stefáni besta vini mínum
innilega til hamigju með daginn, um daginn haha
Svo var ég nú bara að fatta það um daginn að það eru tvæplega
tveir mánuðir i afmælið mitt, sem er í október. Finnst það rosalega
skrýtið, ég er að verða 19 ára eftir smá tima, en samt er svo stutt
síðan ég átti síðast afmæli. Það er meira en hálft árið búið, það
er að koma haust og vetur. Sem þýðir, kuldi, frost, snjór, skafa og
spóla
Núna sit ég bara í rúminu mínu, get ekki sofnað, veit ekki akkuru.
Var samt að vinna í dag, fyrir Valey frá tvö til átta kom svo
heim og var þreyttur, en ég er ekkert þreyttur lengur
Ég ligg bara og er að hugsa, er akkurat núna að hlusta á "Aldrei
fór ég suður" með Bubba, en það minnir mig alltaf á 10 11 hehehe.
Þetta lag kom svo oft í útvarpinu eftir miðnætti þegar ég var búinn
að loka búðinni, og var frammi að ganga frá
Kann það utan að núna útaf því hvað ég heyrði það oft.....
Finnst þetta alveg geðveikt flott lag Ég ætla sko að syngja þetta
inná plötu þegar ég verð frægur
Svo svona rétt í lokinn ætla ég að minna ykkur á að eg er á fullu í
að gera svona "Allt sem þu vissir ekki um Tuma tígur" lista yfir
margt sem sumir vita um mig og aðrir ekki, örugglega fróðlegt fyrir
ykkur sem þekkið mig
En allavega, ég veit að ég hef ekki staðið mig í að blogga,
en ég vona að þetta blogg bæti ykkur það upp, sem biðuð eftir að eg
bloggaði
Takk í bili......sjáumst í Smáralind
»
Síður: 1 2
|
|